H A U S T I Ð er H É R
örlítið af nýjum vörum komnar í vefverslun og meira á leiðinni.
bendum líka á T I L B O Ð S – VÖRURNAR.





– ÚTIHÚSGÖGN SEM VEKJA EFTIRTEKT –
frí sending í póstbox eða pósthús.
Við MÆLUM MEÐ, ef þið eruð að leita að ákveðinni útivöru frá Ecofurn og viljið panta, að fara í valmyndastikuna hér fyrir ofan, ýta á ÚTIVÖRUR og ÚTIHÚSGÖGN og áfram í réttan vöruflokk. Eigum til stóla, fótskemla, bekki og borð. Seljum einnig olíu, snæri og höfuðpúða þurfir þú að endurnýja snæri og púða og bera á húsgögnin. Allar þessar vörur koma beint frá framleiðanda.
ÚTIPOTTAR FRÁ DBKD
Frábærir pottar úr málmblöndu. Þeir munu EKKI ryðga að utan (nema vatn liggi lengi í skálinni sem er undir sumum pottunum) en veðrast og lýsast með tímanum. Losanlegur plasttappi er í botni en með því að hafa tappann í botninum geta þeir líka verið inni. Allt um pottana, verð, stærð og úrvalið HÉR
– VINSÆLAR GJAFIR –
Töskur sem eru 98% úr endurunnum plastflöskum.
Ýttu á myndirnar og þú ferð beint inn í vefverslun.
Haustið kom og svo fór að snjóa🍂🌨️ Á fallegum haustdegi tókum við að okkur að skipta um snæri í gömlum lerkistólum. Stólarnir eru 8 ára gamlir og hafa staðið úti allt árið síðan þeir voru keyptir. Með tímanum vill snærið (sem er úr hampi) gefa sig og á nokkurra ára fresti er þetta nauðsynlegt. Eitthvað sem tekur nú bara um 1/2 tíma að gera.
Við eigum lerkistóla til á lager, þeir eru úr annarsflokks lerki því hitt var ekki í boði. Í vor settum við saman þannig stól og ef þú flettir myndunum sérðu hvernig hann lítur út núna.
Stólarnir eru á mjög góðu verði og hafir þú áhuga eru allar upplýsingar í vefverslun. Varðandi viðhald, þá er það ekki mikið, þetta með að skipta um snærið og svo er gott að pússa létt yfir stólinn (ekki taka í sundur) á vorin með fínum sandpappír. Stóllinn byrjar fljótt að lýsast og grána.
Snagar og snagabretti í svörtu eða stállituðu. Fáanlegt í vefverslun eftirtekt.is. Frí sending í pósthólf eða póstbox sé verslað yfir 12.000 krónur. Greitt er fyrir heimsendingu með Póstinum.
🕯
TULi ilmkerti og ilmstangir í úrvali.
Flottar gjafir.
Kertin eru í dökku glerglasi með viðarloki. Vaxið er náttúrulegt soja vax með tveimur bómullar þræðum.
Ilmurinn er framleiddur í Frakklandi fyrir Tuli.
350 gr. Í glasinu. Brennslutími 75 klst.
NÝ SENDING af vinsælu snyrtitöskunum. Tvær stærðir. Rennilásinn nær yfir þrjár hliðar og því opnast töskurnar mjög vel. Eitt stórt hólf að innan.
Sú stærri er mjög fín fyrir stærri brúsa og flöskur, sú minni fullkomin fyrir minni snyrtivörur og förðunarvörur og getur líka farið ofan í þá stærri.
Vörur frá @larissabergceramics á TILBOÐI í vefverslun okkar.









