Stóll m/höfuðpúða – svört fura

35.000 kr.

Er á lager

Furustóll  í þekjandi svörtum lit.
Snæri og höfuðpúði úr hör  fylgir með.

Á stólinn er borin þekjandi svört olía. Gott er að viðhalda litnum og gefa viðnum næringu og bera reglulega á stólinn. Jafnvel á hverju sumri. Ekki þarf að taka stólinn í sundur til að bera á hann nema verið sé að skipta um snæri líka.  Við seljum líka svarta olíu frá framleiðanda stólanna. Mælt er með að þynna hana út,  1/3 olía 2/3 vatn,  þetta frískar upp á stólinn og gefur viðnum næringu. Gott að prófa fyrst á lítið áberandi flöt. Við seljum einnig aukasnæri ef það slitnar og þarf að skipta, eða þú vilt skipta um snærið. (t.d. um leið og borið er á stólinn.)

ATH. Svarti liturinn smitar aðeins fyrst. Mælum með að strjúka vel yfir stólinn með þurrum klút  og ekki setjast í hann í ljósum fötum fyrst eftir samsetningu. Einnig getur verið gott að vera með  hanska  og passa að hafa alltaf eitthvað undir spýtunum þegar hann er settur saman.

Nánari upplýsingar um vöruna:
– Eingöngu festur saman með snæri sem gerir hann örlítið sveigjanlegan og þú situr ávallt þægilega í stólnum.
– Lagar sig að undirlaginu og hentar vel á ójafnt undirlag.
– Tvær hæðarstillingar (lítill munur) annarsvegar  hefurðu bakspýturnar aftan við spýturnar í sætinu eða bakspýturnar hvíla ofan á þeim.
– Hægt að leggja saman og geyma.
EKKI leggja stólinn saman blautan.
– Hægt að kaupa auka púða, snæri, olíu með lit og hreinsir

– Fyrirtækið er finnskt, framleitt í Eistlandi.
– Allur viður nema lerki kemur úr nærumhverfi verksmiðju

Stærð á kassa: 158 x 14 x 15 cm
Þyngd á stól er 10,5 kg.

Stærð á samsettum stól:
– lengd frá fremsta punkti að aftasta er 1 meter
– hæð á baki 1 meter
– hæð upp í setu 30 – 35 cm
– breidd á setu, við bak, 60 cm
– dýpt á setu 40 cm

Frír flutningur á pósthús, greitt er fyrir flutning heim að dyrum.

Er á lager

Go to Top