50 % afsláttur af öllum vörum frá fyrrum merkinu Casa Berg, sem nú heitir Larissa Berg ceramics.
Larissa hefur fært sig um set, hún flutti frá Akureyri eftir 3 góð ár og býr nú í heimalandi sínu Brasilíu, þar sem hún heldur áfram að búa til fallegar vörur úr leir. Þegar hún flutti urðu hér eftir vörur sem við bjóðum ykkur með góðum afslætti. Endilega fylgið henni á Instagram, gaman að sjá hana koma sér á framfæri í risa borginni Sao Paulo.










