Daiyo –  japönsk kerti.
Handgerð, japönsk kerti úr 100% náttúrulegu jurtavaxi, súmac vaxi. Hvert kerti er handunnið af handverksmeisturum hjá DAIYO í Shiga-héraði í Japan, eingöngu úr náttúrulegum hráefnum. Sagt er að aðeins tíu  kertagerðarmeistarar starfi í Japan. Kveikur japönsku kertanna er holur að innan og gerður úr washi-pappír, sefgrasi og silkitrefjum. Fyrst er washi-pappírnum rúllað upp og sefgrasi vafið utan um hann. Silkitrefjar eru síðan notaðar til að halda grasinu á sínum stað. Kertin hafa náttúrulegan lit og einstaka áferð sem einkennir handgerð kerti.

Kertin brenna jafnt og fallega og loginn er töluvert stærri og tærari en  á hefðbundnum vestrænum kertum. þau skilja eftir sig litlar leifar og þar sem eingöngu eru notuð náttúruleg hráefni myndast minna sót og minni lykt þegar slökkt er á þeim.

Leiðbeiningar;
Gætið þess að nægt rými sé fyrir ofan logann.
Notið kertið ekki í trekki eða sterku sólarljósi.
Setjið kertið beint í óeldfiman kertastjaka og gætið þess að kertið sé stöðugt.
Ef brenndi hluti kveiksins verður of langur meðan kertið logar skal stytta hann með kveikskera (seldur sér) eða flísatöng. Skiljið um 1 cm af kveiknum eftir og fjarlægið hann ekki allan.
Eftir að slökkt hefur verið á kertinu skal ekki fjarlægja brenndu leifarnar af kveiknum, því annars verður ekki hægt að kveikja aftur á því.

Um Daiyo –
Daiyo var stofnað árið 1914 í Takashima í Shiga-héraði í Japan.  Handverksþekkingin hefur gengið í erfðir í fjórar kynslóðir og þróast með tímanum. Í Shiga-héraði er Biwa-vatn, stærsta stöðuvatn Japans, og þar er ríkulegt framboð náttúruauðlinda. Í héraðinu hefur því safnast mikil þekking á samspili manns og náttúru. Sú grunnhugsun þeirra að nýta gjafir náttúrunnar til kertagerðar hefur haldist óbreytt frá stofnun fyrirtækisins fyrir meira en öld.