Daiyo – japönsk kerti.
Handgerð, japönsk kerti úr 100% náttúrulegu jurtavaxi, súmac vaxi. Hvert kerti er handunnið af handverksmeisturum hjá DAIYO í Shiga-héraði í Japan, eingöngu úr náttúrulegum hráefnum. Sagt er að aðeins tíu kertagerðarmeistarar starfi í Japan. Kveikur japönsku kertanna er holur að innan og gerður úr washi-pappír, sefgrasi og silkitrefjum. Fyrst er washi-pappírnum rúllað upp og sefgrasi vafið utan um hann. Silkitrefjar eru síðan notaðar til að halda grasinu á sínum stað. Kertin hafa náttúrulegan lit og einstaka áferð sem einkennir handgerð kerti.
Kertin brenna jafnt og fallega og loginn er töluvert stærri og tærari en á hefðbundnum vestrænum kertum. þau skilja eftir sig litlar leifar og þar sem eingöngu eru notuð náttúruleg hráefni myndast minna sót og minni lykt þegar slökkt er á þeim.
Leiðbeiningar;
Gætið þess að nægt rými sé fyrir ofan logann.
Notið kertið ekki í trekki eða sterku sólarljósi.
Setjið kertið beint í óeldfiman kertastjaka og gætið þess að kertið sé stöðugt.
Ef brenndi hluti kveiksins verður of langur meðan kertið logar skal stytta hann með kveikskera (seldur sér) flísatöng eða skærum. Skiljið um 1 cm af kveiknum eftir og fjarlægið hann ekki allan.
Eftir að slökkt hefur verið á kertinu skal ekki fjarlægja brenndu leifarnar af kveiknum, því annars verður ekki hægt að kveikja aftur á því.
Um Daiyo –
Daiyo var stofnað árið 1914 í Takashima í Shiga-héraði í Japan. Handverksþekkingin hefur gengið í erfðir í fjórar kynslóðir og þróast með tímanum. Í Shiga-héraði er Biwa-vatn, stærsta stöðuvatn Japans, og þar er ríkulegt framboð náttúruauðlinda. Í héraðinu hefur því safnast mikil þekking á samspili manns og náttúru. Sú grunnhugsun þeirra að nýta gjafir náttúrunnar til kertagerðar hefur haldist óbreytt frá stofnun fyrirtækisins fyrir meira en öld.








