Furustóll í þekjandi svörtum lit.
Snæri og höfuðpúði úr hör fylgir með.
Á stólinn er borin þekjandi svört olía. Gott er að viðhalda litnum og gefa viðnum næringu og bera reglulega á stólinn olíu. Jafnvel á hverju sumri. Ekki þarf að taka stólinn í sundur til að bera á hann nema verið sé að skipta um snæri líka. Við seljum líka svarta olíu frá framleiðanda stólanna. Hana má þynna út, jafnvel 1/3 olía 2/3 vatn, þetta frískar upp á litinn á stólnum og gefur viðnum næringu. Gott að prófa fyrst á lítið áberandi flöt. Hinsvegar má nota hvaða viðarolíu sem er fyrir viðar útihúsgögn, bara ekki nota lakk. Við seljum einnig aukasnæri, ef það slitnar og þarf að skipta, eða þú vilt skipta um snærið. (t.d. um leið og borið er á stólinn.)
ATH. Við mælum með að furustólarnir standi ekki úti óvarðir yfir veturinn. Best er að geyma þá í kaldri geymslu, skúr, en margir taka þá inn í hús. Við það rýrnar viðurinn og því er MJÖG MIKILVÆGT að herða snærið á vorin. Það getur verið meiri hætta á sprungum ef stóllinn er geymdur við stofuhita en og nú tölum við af reynslu, virðist það ekki hafa teljandi áhrif á viðinn. Hægt er að leggja stólana saman og geyma þannig. Passa þarf að viðurinn sé alveg þurr þegar þeir eru lagðir saman.
ATH. Svarti liturinn smitar aðeins fyrst. Mælum með að strjúka vel yfir stólinn með þurrum klút og ekki setjast í hann í ljósum fötum fyrst eftir samsetningu. Einnig getur verið gott að vera með hanska og passa að hafa alltaf eitthvað undir spýtunum þegar hann er settur saman.
Nánari upplýsingar um vöruna:
– Eingöngu festur saman með snæri sem gerir hann örlítið sveigjanlegan og þú situr ávallt þægilega í stólnum.
– Lagar sig að undirlaginu og hentar vel á ójafnt undirlag.
– Tvær hæðarstillingar (lítill munur) annarsvegar hefurðu bakspýturnar aftan við spýturnar í sætinu eða bakspýturnar hvíla ofan á þeim.
– Hægt að leggja saman og geyma.
– EKKI leggja stólinn saman blautan.
– Hægt að kaupa auka púða, snæri, olíu með lit og hreinsir
– Fyrirtækið er finnskt, framleitt í Eistlandi.
– Allur viður nema lerki kemur úr nærumhverfi verksmiðju
Stærð á kassa: 158 x 14 x 15 cm
Þyngd á stól er 10,5 kg.
Stærð á samsettum stól:
– lengd frá fremsta punkti að aftasta er 1 meter
– hæð á baki 1 meter
– hæð upp í setu 30 – 35 cm
– breidd á setu, við bak, 60 cm
– dýpt á setu 40 cm





