LÆGRA VERÐ.
sumar 2025 var verðið 46.000.-
sumar 2026 er fullt verð 33.000.- en við bjóðum þá á 28.000.-
Lerkistólarnir sem eru til núna eru allir úr annars flokks lerki (hitt var ekki fáanlegt) Þetta þýðir að í sumum spýtunum eru og geta verið sprungur. Það á þó ekki að koma að sök. Ef hinsvegar sprunga nær í gegn og útlit fyrir að spýtan geti klofnað má hafa samband í skilaboðum og við getum látið þig hafa aukaspýtu. Við settum saman einn stól úr þessu efni og hann lítur ljómandi vel út. Við gátum einfaldlega snúið spýtunum þannig að sprungurnar snerust ýmist niður eða væru aftan á bakinu s.s. ekki á þeim flötum þar sem setið væri.
– ómeðhöndlaður viður sem gránar á 3- 4 árum
– kemur ósamsettur í kassa
– eingöngu festur saman með snæri
– lagar sig að undirlaginu
– tvær hæðarstillingar (ekki mikill munur)
– hægt að leggja saman og geyma
– höfuðpúði úr hör fylgir (polyester fylling)
– hægt að kaupa auka púða og snæri til að skipta
– fyrirtækið er finnskt, framleitt í Eistlandi
– lerkið kemur frá Rússlandi.
Stærð á samsettum stól:
lengd frá fremsta punkti að aftasta er 1 meter
hæð á baki 1 meter, hæð upp í setu 30 – 35 cm
breidd á setu, við bak, 60 cm, dýpt á setu 40 cm
Stærð á kassa: 14x15x127 cm, þyngd á kassa: 12,6 kg.







