Mið: 27x24cm
Ave pottarnir eru úr léttsteypu, blöndu af sementi, plasti og fleiru.
Þeir koma í þremur stærðum sem flott er að raða saman. En þeir eru líka fínir stakir eða í grúppu með öðruvísi pottum.
Ave pottarnir eru frekar léttir, með gat í botni, en ekki frostþolnir. Standi þeir úti yfir veturinn veðrast þeir fyrr og ef mold frís í þeim fara þeir að springa með tímanum. Alltaf er gott að hafa steina eða vikur neðst í potti og veljir þú að hafa þá úti yfir veturinn er betra að setja ofan í þá plastpott (ofan á vikurinn) og plöntuna þar í.



