Vandað og gott viskastykki  með síldarbeinamunstri.
Hönnuður Örn Smári
100% vottuð bómull
stærð 50 x 70 cm
má þvo á 60° hita

Silfur hafsins litaði ekki aðeins hafið, það litaði lífið og efnahag landsins, skóp síldarstúlkur og síldarævintýri. Orð eins og dixilmaður, drífholt, peningalykt, brakkar og bryggjuball voru á allra vörum og tunnan sem saltað var í hafði ekki lok heldur efri og neðri botn.

Hönnuður fiskastykkjanna, Örn Smári dregur innblástur sinn úr hafinu. Ungur var hann sendur vestur á firði þar sem eðlileg afþreying fyrir unga drengi var að sitja saman á bryggjusporðinum og dorga. Að fara með frændum á smáum bát með utanborðsmótor að vitja grásleppuneta var hin mesta upplifun.